Allt Internet datt út um tíma vegna bilunar í tæknibúnaði Gagnaveitu Skagafjarðar.
Komist hefur verið fyrir vandamálið og ættu allar þjónustur að vera komnar í lag aftur.
Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum.
Ljósleiðari
Ljósleiðaratenging Fjölnets:
Háhraða sítenging við Internetið, sendi- og móttökuhraði er allt að 100 Mbit/s. Ljósleiðaratenging gjörbreytir möguleikum heimilisins til afþreyingar og vinnu.
Vegna þess hve afkastamikil tengingin er, eru möguleikar ljósleiðarans gríðarlega miklir. Sem dæmi má nefna stafrænt gagnvirkt sjónvarp með úrvali sjónvarpsrása, símaþjónustu, fjarkennslu, fjarfundi, heimilisvöktun, öryggishólf fyrir gögn og margt fleira.
Notendur kaupa aukalega þá viðbótarþjónustu sem þeim hentar.

