Kostir þess að fara í Kerfisveitu Fjölnets eru fjölmargir. Þar eru gögnin þín afrituð með öruggum hætti, aðgengi að gögnum og þjónustu er einfalt og kostnaður gegnsær.
Kerfisveita Fjölnets er hýst á öflugum netþjónum og diskastæðum þar sem rekstraröryggi er haft að leiðarljósi.

Hvers vegna er Kerfisveita Fjölnets frábær kostur fyrir þig?
- Kerfisveitan er sveigjanleg
- Auðvelt er að bæta við eða draga úr þeirri þjónustu sem er keypt.
- Gögnin eru aðgengileg hvar og hvenær sem er með öruggum hætti.
- Gögnin eru afrituð örugglega.
- Meiri uppitími, meira rekstraröryggi, minni kostnaður.
- Öflugt eftirlit á vélbúnaði og stýrikerfum tryggir hámarksafköst.
- Kostnaður við eiginn búnað er minni
- Líftími útstöðva lengist verulega.
Hvað er Kerfisveita
Kerfisveita er miðstýring. Fyrirtæki geta leigt aðgang að forritunum sem geymd eru á miðlægum stað í stað þess að festa kaup á dýrum forritum.
Innifalið er rekstur, uppfærslur, viðhald og öll dagleg umsjón. Með þessu geta fyrirtækin sparað útgjöld og búið við meira öryggi.
Kerfisveitan kemur oft í stað tölvudeildar í fyrirtækinu. Fjölnetið getur tekið yfir rekstur og umsjón tölvukerfa fyrirtækisins.
Tækniþróun gerir fyrirtækjum oft erfitt fyrir að halda utan um þekkingu sem nauðsynleg er í rekstri tölvukerfa.
Með Kerfisveitu fæst aðgangur að þekkingu sérfræðinga sem sjá um að uppfylla þarfir viðskiptavinarins.
